Ozzy heitir fullu nafni John Michael Osbourne, hann fæddist þriðja Desember 1948 í Birmingham á Enlandi.
Foreldrar hans hétu Jack aog Lillian Osbourne. Ozzy átti fimm sistkyni, 2 bræður og tvær sistur, bræður hans hétu Paul og Tony en sistur hans hétu Jean, Iris og Gillian.

Ozzy Osbourne býr í Beverly Hills með fjölskyldu sinni. Osbourne fjölskyldan á marga hunda og marga ketti. Þau eiga pomoranian hund, King Charles Spaniel, Bolabít og miklu fleirri hunda. Pomoranian hundur inn heitir minnie og Bolabíturinn heitir Lula.

Ozzy og fjölskyldan hans eru með raunvöruleikaþátt heima sér. Þátturinn heitir The Osbourne og vann einhver verðlaun sem besti raunveruleikaþátturinn. Ozzy á þrjú börn þau Kelly, Jack og Jessicu en Jessica er flutt að heiman og sést aldrei í þáttunum.

Einu sinni þegar Ozzy var að reyna að fá plötusamning þá tók hann úr vasanum sínum fullt af dúfum og kastaði þeim upp í loftið og leyfði þeim að fljúga um herbergið. Síðan tók Ozzy upp eina dúfuna, lét hana upp í munninn á sér og beit hausinn af. Ozzy fékk plötu samninginn en plötufyrirtækið vildi aldrei fá að sjá hann aftur. Síðan stuttu eftir þetta var Ozzy með tónleika. Á tónleikunum var hann með fullt af plat leðurblökum sem hann beit hausinn af. Svo var kastað alvöru leðurblöku upp á sviðið frá áhorfendunum. Ozzy tók hana upp og beit hausinn af henni og spýtti honum út úr sér. Þá var farið með Ozzy upp á sjúkrahús og hann fékk sprautu svo hann fengi engan sjúkdóm eða eitthvað líkt því.