Eins og kannski titilinn sýnir þá á Nirvana stóran bás í hjarta mínu! Þessi rokk hljómsveit sem er hrein snilld var nokkurn veginn stofnuð 1985 þó að seinna meir hafi bæst við fleiri meðlimir.
Hjarta og sál hljómsveitarinnar er og verður Kurt Cobain… Hérna er smá um hann:

Hann fæddist 20 febrúar árið 1967 í Hoquaim sem er lítill bær 140 km suðvestur af Seattle. Hann flutti samt snemma í nágrannabæinn
Aberdeen.Hann varð snemma heillaður af hljómsveitinni Sex Pistols.. Og upp úr því byrjaði hann að semja tónlist sem nú er fræg um allan heim. Þegar Kurt Cobain framdi “sjálfsmorð” (persónulega held ég að Courtney hafi drepið hann en hef engar beinar sannanir) þá grétu allir Nirvana-aðdáendur sárt…. (alla vegna inni sér!) Ég elska Nirvana og á eftir að hlusta á tónlistina þeirra þangað til ég leggst í gröfina!