Það er alveg fáranlegt með þetta rokk áhugamál á huga. Sama hvað einhver segir hérna þá fer alltaf einhver að minnast á Nirvana, Metallica, Iron Maiden, ACDC eða Gunsn roses.
Ég er orðin svolítið nett pirraður á þessu og þannig að ég held að það væri ekkert slæm hugmynd að stofna nýtt áhugamál. Svo kallað, “Nirvana, Metallica, ACDC, Iron Maiden og Gunsn Roses áhugamál” þar sem þeir sem alltaf vilja tala um þessi bönd geta gert það og lofað þau fram og til baka, rifist um hvað af þessum böndum sé best eða dissað þau. Miðað við það sem ég hef séð hér á huga þá virðis vera alveg rosalega mikill á áhugi á þessum böndum.