Sælir hugarar.

Þið afsakið að ég hendi út hér korkum varðandi miða á tónleika
Foo Fighers. En okkur stjórnendum huga finnst þessi okur markaður
vera hreinasti viðbjóður og viljum við ekki gera korka huga að
uppboðspalli. Listaðir eru hinsvegar þeim sem vantar miða í
kubbnum hér efst á síðunni og getið þið svo séð um að eiga
viðskiptin UTAN huga. Ég skellti líka inn upplýsingunum frá
skífan.is til þess að kaupendur geti gert sér grein fyrir
upprunalegu verði.

EF YKKUR VANTAR MIÐA SKULIÐ ÞIÐ SENDA MÉR SKILABOÐ HÉR Á HUGA MEÐ
ÞEIM UPPLÝSINGUM SEM ÞIÐ VILJIÐ KOMA Á FRAMFARI OG ÉG SET ÞAU Í
KUBBINN HÉR AÐ OFAN. EKKI SENDA Á KORKA.

Með von um heiðarleg viðskipti.
Tannbursti