Var að hlusta á Rás 2 fyrir svona 2-3 dögum og þá voru 2 gaurar að tala um Radiohead og komu með nokkrar útgáfur af hinu stórfenglega lagi creep. Ein útgáfan fannst mér alveg ótrúlega fyndin en bara nokkuð góð. Þetta var svona hröð útgáfa af laginu með frekar gömlum tónlistarmanni (tekið live) ef þið hafið einhverja glóru hvar ég get fundið þetta lag eða nafnið á tónlistarmanninum væri ég mjög þakklátur!