Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver þarna kynni að komast fram hjá svona Copy Control vörn. Ég var nefnilega að fá mér nýja Cave In diskinn og hann er með svona vörn en mig langar hræðilega að skrifa eitt eintak til að hafa í bílnum. Tími samt ekki að tússa á diskinn eða neitt þannig því ég elska hann bara of mikið :P Ef einhver kann einhver ráð við þessu væru þau vel þegin :)