Í þessum töluðu orðum er ég að hlusta á soundtrackið við heimildarmyndina “Hlemmur” en tónlist er í höndum Sigur Rósar. Þessi diskur inniheldur 19 lög sem eru öll á bilinu 1-4 mínútur og eiga það sameiginlegt að vera frábær…

Það er lítið um trommur á þessum disk en mun meira um ambient / raftónlist sem minnir stundum skemmtilega á Múm. Þó er Sigur Rósar sándið aldrei langt undan… sem er gott!

Þessi diskur er víst til í 12 Tónum í mjög takmörkuðu upplagi þannig að áhugasamir ættu að versla sem fyrst.



Ég mæli allavegana með honum… hver sem ég er.