Hafiði heyrt þetta lag með kántrísöngvaranum Darryl Worley? Þetta er mjög gott lag, sem er samið til að styðja við bakið á hermönnunum sem eru að berjast. Kominn tími til að einhver semji lag um eitthvað annað en að vera á móti stríði eins allir þessir fábjánar sem halda að það sé töff að vera á móti stríði. Ég er kominn með ógeð af öllum þessum ömurlegu antistríðslögum! Það er ekki hægt að hlusta á útvarpið í meira en hálftíma og þá er maður búinn að heyra eitt eða jafnvel tvö lög sem eru gegn stríði…
Ég mæli með því að þið hlustið á hina hliðina á þessu máli og náið ykkur í þetta lag á Kaaza. Þetta er frábært lag og textinn er algjör snilld!