Dagur í lífi þungarokkara:
12:35 - Þagga í klukkunni með smá barsmíðum og reyni að vakna.
12:40 - Labba niður og fæ mér að borða.
12:55 - Fer inná baðherbergi og þvæ mér í framan með köldu vatni.
13:00 - Fer upp aftur og klæði mig í buxurnar, bolinn og peysuna.
13:10 - Fer út og skelli á eftir mér.
13:25 - Fer á hljómsveitar æfingu og vakna aðeins betur.
13:55 - Fæ mér að drekka og hvíli mig aðeins.
14:10 - Æfingin heldur áfram.
14:25 - Orðinn mjög þreyttur og farinn að spá í það hvort ég ætti ekki að fara að æfa einhverja íþrótt.
14:50 - Hljómsveitaræfingin búinn
14:55 - Labba út kolsveittur, greiði hárið aðeins frá augunum og fer útí sjoppu.
15:10 - Kaupi mér nammi fyrir 250 kall og Coke.
15:35 - Byrja að labba mjög hægt heim.
15:50 - Kominn heim og fer beint uppí rúm að sofa.
17:25 - Mamma kemur klikkuð og segir mér hvað klukkan er.
17:35 - Vakna aftur.
17:40 - Fæ mér að borða, fer upp og hlusta á Kiss í botni.
18:05 - Fer niður að borða afgang síðan í gær.
18:20 - Fer upp að sofa.

ATH: Þetta er ekki dagur í lífi mínu (hehe).