Föstudagskvöldið 31. janúar munu Vinyl og Mínus leika í Norðurkjallara MH, Hamrahlíð fyrir alla sem vilja. Skólafélag MR og Nemendafélag MH standa að þessum atburði í sameiningu og er miðaverð 400,- fyrir þá sem eru í öðru hvoru þessara félaga, en 800,- fyrir aðra. Ég get lofað svita og tárum, því þetta er rokkveisla sem enginn vill missa af. Fjörið hefst kl. 21.