Jæjja nú ætla ég að segja það sem mér fynnst um að byrja með band. Sjálfur hef ég ekki reynsluna en ég held að þetta sé svona.

Bassaleikari og gítarleikari koma sér saman og byrja að leika sér að spila metallica “cower” eða eitthvað. Svo gengur þeim allveg ágætlega og leita sér af trommara, sem er alls ekki auðvellt og þarna stoppa margir, en sumir fynna hann og mynda 1 stykki bílskúrsband. En það er líka frekar erfitt því það fá ekki allir æfingaraðstöðu.

Ef þetta gengur þá er bandið svona 3-5 meðlimir og þeir spila einhver flott lög eftir aðra og skýra hjómsveitina eftir meðali ;) svo þegar þeir byrja semja þá endar það sem ekta íslenskt dauðarokk! svo eru nokkrar undantekningar sem eru smá frumlegar og eru þá að meika eitthvað…..

En auðvitað er þetta ekki nákvæmlega svona….að vera í bílskúrsbandi er bara nett!! þetta fyrir ofan er bara svona dæmi um hvernig þetta gengur fyrir sig.

:P haldið síðan endilega áfram að rokka og gera eitthvað sniðugt!
Boing…