Sælinú. Ég heyrði í gær á radíó x að það ættu að vera tónleikar með Megasi í Austurbæ(jarbíói) annað hvort á morgun eða hinn, ég náði því ekki alveg, en minnir að talað hafi verið um föstudaginn. En ég bara get ekki fengið þetta staðfest neinsstaðar, hvergi á neinum vef er minnst á þetta, ég hef ekki heyrt um það aftur í útvarpinu, og ekki svarar neinn símanum í Austurbæ, svo mér var að detta í hug hvort einhver viti meira um þetta?