Hæhæ, vildi bara vekja athygli á því að góðar hljómsveitir geta sent massa tónlistarblaðinu Sánd demó, svo lengi sem þær hafa ekki gefið út áður og svo verður allt hafaríið dæmt af pró fólki og vinningshafarnir fá stúdíótíma. Núlleinn er með þetta og svo er einnig hægt að koma bara með demó niður á skrifstofu Sánds í Vallarstræti 4(í sama húsi og Ground Zero við Ingólfstorg). Endilega verið með, þeir sem vinna fá umfjöllun í Sánd, svo þetta er ágætis tækifæri til að koma sér á framfæri. Fyrir utan, alltaf gaman að vera með og sniðugt að styðja við sona fína hugmynd því ég veit að Sánd vill hafa þetta góða keppni og sanngjarna og hafa mikinn metnað í það.