Hæ allir, Tómas Young heiti ég og er opinber tengiliður Hróarskelduhátiðarinnar á Íslandi (Official Roskilde Festival representetive). Það er alltaf mikil umræða um Roskilde hér, hvaða bönd verða, orðrómar og svo framvegis.

Venjan er hjá stjórnendum hátíðarinnar að upplýsa einhver bönd í janúar. Nú á þetta að fara að breytast. Stefna stjórnar hátíðarinnar er að segja enginn nöfn fyrr en búið er að skrifa undir samning um að band eigi að spila, til þess að gera engan vonsvikinn.

Þannig að mín er ánægjan að segja ykkur frá því að 27. nóv verða upplýst 1 - 4 nöfn á böndum sem spila á nk. hátið!

fylgist með því á annaðhvort roskilde.ipfox.com(hin íslenska RF síða) eða á www.roskilde-festival.dk (offical síðan)

kveðja

Tómas Young