Það var nú fyrst hér á huga sem eitthver minntist á þessa hljómsveit sem ég sá, það var í löngum lista yfir hljómsveitir sem vert væri að tékka á og tók ég þá manneskju á orðinu og fann eitthver lög á netinu.

Þetta eru snilldarlög, kassagítar og söngur, og ég væri mikið til í að eignast disk með þeim en nei… það kannast bara enginn við þá!!

Ég sé ýmislegt á netinu en ekkert á Íslandi. Hef ekki fundið neitt í Skífunni þó ég gæti kannski leitað betur, ekki til neitt í Geisladiskabúð Valda og þegar ég fór í Hljómalind hafði afgreiðslumaðurinn ekki hugmynd um hvað ég var að tala og átti ekkert með þeim.

Ég get auðvitað leitað betur en mig langaði líka bara að benda ykkur á þetta snilldarband! mæli með því við alla=) sérstaklega lögunum

Again I go unnoticed
Screaming Infedelities
Shirts and Gloves
Drowning

Það á ekki að vera neitt mál að finna þetta á netinu=)<br><br>Enginn er eyland…
Daddy, don't ever die on a friday! It can seriously damage your health!