Góðan daginn kæru landsmenn

Ég hef verð Hardcore Nirvana Fan síðan ég heyrði lag með þeim í hið fyrsta sinn. Ég myndi bókstaflega skera af mér hendi til að fá að hafa verið á tónleikum með þeim. Kurt Cobain, Dave Grohl og Chris Novoselic eru mér sem guðir.Kurt hafði reyndar nokkra smávægis galla t.d. að vera háður heróíni, giftast Courtney Love og að drepa sig sem að Courtney hafði líklegast eitthvað að gera með. Ef þið eruð þreytt á að heyra einhjverja samsæris-aula röfla um morðið á Kurt þá skuluð þið kíkja á málið sjálf á síðunni
www.Cobain-case.com þá munuð þið sjá sannanir sem geta hjálpað ykkur í ykkar leit af skoðun í þessu máli. Einnig mæli ég með því að þið sjáið myndina Kurt&Courtney sem fæst á flestum góðum vídeóleigum. Nirvana hefur ekkið ómað í eyrum landsmanna í langan tíma þar til nú þar sem nýji diskurinn kom út. Ég skora á ykkur sem segjast ekki fíla Nirvana að allavega gefa þeim séns því að jafnvel óperufans fíla Nirvana.