Ég var að hlusta á útvarpið um daginn, og rakst ég á þessa stöð þegar ég var að leita eftir einhverju almennilegu, því að mínu mati hefur íslenskt útvarp verið heldur leiðinlegt undanfarið. En mér virðist sem loksins sé komin rás sem spilar eitthvað almennilegt. Snillingar á borð við Black Sabbath eru reglulegir gestir þarna, ásamt fleirum góðum. Reyndar hef ég bara hlustað á þessa stöð um kvöldin, þannig að kannski er þessi dagskrá bara þá, eða yfir allan daginn, ég er ekki viss.

En allavega, ég mæli með að ef þið eruð að hlusta á útvarpið einhvern tímann, að stilla á 104.5.