Danska hljómsveitin Tesco Value mun troða upp á tvennum tónleikum ásamt hinni Reykvísku Kimono (www,mineur-aggressif.com) um helgina. þeir fyrri verða á Café 22 á fös. 31.maí kl 23:00, og þeir seinni í garðinum á Sirkus, Klapparstíg 30, lau. 1 júní kl 17:00. Tesco Value er stórskemmtileg hljómsveit sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Kimono er ung hljómsveit úr indígeiranum, en von er á breiðskífu frá þeim með sumrinu.