Lambretta - virkilega catchy rokk frá Svíþjóð Ég veit… ég viðurkenni það að þrátt fyrir að hlusta á fullt af obscure þungarokkshljómsveitum allt frá léttþungarokki upp í argasta blackmetal og stakasta hardcore, þá hef ég alltaf verið svolítið veikur fyrir vel sungnu og catchy poppi, þó svo að ég sé kannski ekki að kaupa slíka tónlist, en á góðum degi er hægt að standa mig að því að syngja með einhverju backstreet boys laginu eða Kylie Minoque (hún er þó í það minnsta hot! og syngur vel… hehe).

Góðir hálsar, Svíþjóð hefur skapað nýja undrasveit, sem heitir Lambretta. Sveitin spilar hressilegt rokk í poppaða kantinum, en þó með stórum hard rock keim og ótrúlega catchy lögum.

Fyrsti singullinn, Bimbo, af nýjustu plötunni þeirra hefur verið spilað á MTV og út um allt og hefur farið í platínu í Noregi og Svíþjóð.

Þrátt fyrir að vera metalhaus, þá fíla ég þetta nokkuð vel, enda notar sveitin ágætlega mikið af gíturum og sker sig þ.a.l. út frá restinni af poppskaranum.

Ekki minnkar ánægjan þegar þið sjáið söngkonuna, sem er einungis tvítug en hefur verið í bandinu í fimm ár og er virkilega hæfileikarík og einnig fyrir augað (I know, I'm weak…)

Kíkið á eftirfarandi tvö myndbönd, sem eru í nokkrum útgáfum eftir því hvaða hraða þið eruð með.

Bimbo:
Lan: http://www.lambrettamusic.com/stream/video/ram/bimbolan.ram
ISDN: http://www.lambrettamusic.com/stream/video/ram/bimboisd n.ram
56K: http://www.lambrettamusic.com/stream/video/ram/bimbo56k .ram

Creep:
LAN: http://www.lambrettamusic.com/stream/video/ram/creep/la n.ram
ISDN: http://www.lambrettamusic.com/stream/video/ram/creep/is dn.ram
56K: http://www.lambrettamusic.com/stream/video/ram/creep/56 k.ram

Heimasíða: http://www.lambrettamusic.com
Resting Mind concerts