Ég sendi þessa grein inn ekki alls fyrir
löngu, eða þann 4. mars síðastliðinn. En
þá var einhver galli á huga.is og allt
gerðist mjög hægt og einhvern veginn þá
var ekki einu sinni hægt að svara greininni
minni.. ekki einu sinni eftir að huga menn
voru búnir að greiða úr flækjunni sem var
á þessum tíma á vefsíðunni! ég prófaði það
sjálf!!

Allavega þá fékk ég engin stig fyrir þessa
grein þá sem mér þótti mjög fústrerandi og
þrátt fyrir ítrekaðar sendingar til vefstjóra
og fleiri fékk ég ekki stigin mín! Ég fékk
reyndar að heyra að stigin væru hætt að
skipta máli á huga.is en því er ég ósammála!!
Mér finnst gaman að safna stigum fyrir greinar!
Þess vegna ákvað ég að senda inn greinina aftur
og nú ætti a.m.k. að vera hægt að segja álit
sitt á þessari grein sem ég veit að er ekki
hægt á gömlu greininni! En allavega, njótið
vel

Kv.
umsalin



Ég hlusta mikið á tónlist, er bæði að læra á
hljóðfæri og að syngja. Mín uppáhaldstónlist
er rokk og þar af leiðandi hlusta ég mest á
þess konar tónlist. En mér þykir miður að ég
heyri aldrei í rokksöngkonum. Rokkið virðist
ekki eiga neina söngkonu sem er þekkt, og er
að gera eitthvað af viti í dag!

Er það kannski svo að stelpur geta ekki orðið
frægar á rokksöng? Það mætti halda að EF
einhverjar söngkonur syngi rokk þá hljóti þær
að eiga mjög erfitt uppdráttar. Eru þær kannski
hræddar við að steypa sér út í þetta karlaveldi
sem rokksöngur er orðinn?

Annars eru kerlingar hrikalega sérvitrar. Það
mætti halda að þær héldust aldrei í hljómsveit.
Um leið og hljómsveitin verður þekkt ofmetnast
söngkonurnar og snúa sér að sólóferli þar
sem þær gefa út plötur með frumsaminni tónlist
sem hreint út sagt er skelfileg. Þið kannist
við þetta er það ekki? Heiða úr Unun er dæmi
um kellingu sem linaðist og hélt að hún væri
merkilegri en restin af bandinu!

Getur verið að kvenmenn hlusti ekki á rokk?
Því trúi ég tæpast… en kannski finnst söng-
konum að rokksöngur sé óæðri en annar söngur.
Það er ekki mín skoðun. Komast þær hreinlega
ekki í hljómsveitir vegna kynferðis þeirra?
Ég veit að minnsta kosti að það er allt morandi
af kellingum í poppinu, þónokkuð í kántrýinu
og jafnvel rappinu.

Ég held að ef einhver stelpa sem getur eitthvað
sungið tæki upp á því að syngja rokk þá væri
það svo sérstakt að það tæki hana enga stund
að verða þekkt. Ég er á því að það vanti fjöl-
breytni í rokksöng og hún fæst meðal annars ef
að kellingar tækju sig til og færu að syngja rokk.

kv.
umsalin