Quarashi á Q101 !! Quarashi hefur verið að gera það gott upp á síðkastið og fer þetta bara batnandi hjá strákunum “okkar” (hehe). Nú er komið á það stig að strákarnir eru á barmi heimsfrægðar og við getum lagt okkar að mörkum. Þannig er mál með vexti að hægt er að kjósa þá á 9@9 listann sem er á Chicago stöðinni Q101 sem er með gífurlegan hlustendahóp.

Þið gerið ykkur grein fyrir því að íbúafjöldi í Chicago er tæpar 3 milljónir og áhrif þessarar útvarpsstöðvar eru mjög mikil. Aðrar stöðvar taka eftir því hvaða sveitir eru á listanum. Og þá fer snjóboltinn að renna og stækka.

<a href="http://www.q101.com/station_pages/top9at9_page.jhtml">http://www.q101.com/station_pages/top9at9_page.jhtml</a>


Hér getið þið kosið 9 bestu lögin. Leggjumst á eitt og hjálpum strákunum. Reynið að kjósa sem oftast á dag því ATH hægt er að kjósa einu sinni á klukkutíma.

Þannig að alltaf þegar þið skellið ykkur á netið; munið eftir að kjósa Quarashi - Stick 'em up á

<a href="http://www.q101.com/station_pages/top9at9_page.jhtml">http://www.q101.com/station_pages/top9at9_page.jhtml</a>


ath einnig
<a href="http://www.q101.com/">http://www.q101.com</a>


Kær kv
supernova
_____________________________