Ég hef verið að velta svolitlu fyrir mér. Það er heit umræða í gangi um Creed þessa stundina og virðast allir elska hana eða elska að hata hana. Margir úr seinni hópnum virðast sjá þá aðeins sem “pearl jam cover grúppu”, sem ég er ekki að sjá sjálfur, en stóð mig að því að vera of fáfróður um Pearl Jam til að dæma um það. Það er þess vegna sem mig langar til að spyrja ykkur Pearl Jam aðdáendur/Creed hatara einnar spurningar. Áður en kemur að henni kemur ætla ég að segja að þetta snýst ekki um hvor hljómsveitin er betri, heldur mannlega hegðun þannig að ég ætla að biðja ykkur um að vera hreinskilin og ef þið viljið bara skítkast getið þið farið í “Creed - Weathered = Meitaraverk” greinina þar sem er nóg af því.

Spurningin: Hafið þið, sem haldið því fram að Creed sé bara að herma eftir Pearl Jam, hlustað á meira en á singlana í útvarpinu. Hafið þið hlustað á plöturnar og jafnvel pælt í þeim.

Ég varpa sömu spurningar (með öfugum formerkjum) til þeirra sem hlusta á Creed en fíla ekki Pearl Jam.

Segið mér reynslu ykkar en ekki tilfinningar!
www.dojopan.com