Góðan daginn

Nú styttis í annað Sköllfestið í röð.
Á svipuðum tíma í fyrra datt mér í hug að halda svona
all-dayer til að halda upp á þau tímamót að sumarið
væri búið og skólarnir hafnir (ekki að það sé eitthvað
til að halda upp á…en þið vitið), svokallað back to
school jam en mig vantaði nafn og Sköllfest var málið
þá og er málið enn því að hugmyndin var að halda þetta
árlega og með það markmið að safna saman undir sama
þaki - sama kvöld, bestu og athygglisverðustu
jaðarböndum landsins, óháð stefnu, straumum og
skilgreiningum. Það má því með sanni segja að
Sköllfest II sé enn fjölbreyttara en Sköllfest.
Með þessu vonast ég einnig til að fá eins
fjölbreyttann hóp áhorfenda og mögulegt er svo þeir
megi styðja “sín” bönd en á sama tíma opna augu og
eyru fyrir öðrum. Get t.d. ekki beðið eftir því að 16
ára dauðarokkari sem gerir lítið annað en að
dauðarokkast, heyrir í Kimono og að einhver gamall
tuddarokkari sem er þarna út af Drep sjái unga
Garðbæinga í Skít spila sitt óforskammaða “evilcore”.

Listamennirnir eru að þessu sinni:

BLACKLISTED: frá Fíladelfíu Bandaríkjanna kemur eitt
virtasta og harðduglesta hardcore band dagsins í dag.
Gefnir út af hinni virtu útgáfu Deathwish Inc
(Converge, Hope Conspiracy, Modern Life Is War…).
ENGIN óháð hljómsveit túrar jafn mikið og þessir menn.
Búast má við hardcore hörku og ofurþyngslum í ætt við
Hatebreed, Buried Alive, Life Of Agony… Sannkallaður
heiður að fá þessa stríðsmenn þjóðveganna hingað til
Reykjavíkur!
Af heimasíðu Deathwish Inc (www.deathwishinc.com):
“Whether it's with their infectious hardcore urgency,
or uniquely powerful lyrics, the true grit of
Blacklisted will move you. They carry a soul and
energy unlike any other hardcore band. Blacklisted
pick up the torch that contemporary legends American
Nightmare once proudly carried. Merging a violence,
honesty, and emotional outpouring into one untamable
and inspiring hardcore machine.

Blacklisted came to the forefront of the hardcore
community with their ”Our Youth Is Wasted“ CD,
released on Jamey Jasta's Stillborn label (now out of
print). After touring the U.S. in support of the
release, the band took part in the ”Dead Man's Hand“
split 7”EP series on Deathwish, pairing up with LA's
First Blood. This release was the first step in now a
long standing friendship and partnership between the
band and the label.

Shortly after that release surfaced, Blacklisted found
a permanent home on Deathwish and released their
“We're Unstoppable” CD. A collection of songs from
their classic demo recordings and the “Our Youth…”
release.

In 2005, they entered The Outpost with engineer Jim
Siegel (Blood For Blood, Dropkick Murphys) to record
their now classic album “…The Beat Goes On”.
Comprised of 13 contemporary hardcore anthems, “…The
Beat Goes On” celebrates the triumph, underdog
determination that defines Blacklisted.

After over a year of constant touring and lineup
refinement, Blacklisted returned with their greatest
release to date “Peace On Earth, War On Stage”.
Recorded with Kurt Ballou at Godcity Studios, “Peace
On Earth, War On Stage” is comprised of four
groundbreaking musical wars. Showcasing the intense
musical progression, poetic prowess, and raw sonic
power that is today's Blacklisted.

Blacklisted continue to reign supreme over the world
of contemporary hardcore."
*******************************************************************

Tóndæmi:
PEACE ON EARTH, WAR ON STAGE:
http://deathwishinc.com/listennow/launch/20

… THE BEAT GOES ON:
http://deathwishinc.com/listennow/launch/2


CELESTINE: Blýþungur gafumanna-talningarmetall undir
áhrifum frá Isis, Ion Dissonance, Buried Inside,
Meshuggah…

DIABOLUS: efnilegasta dauðarokkssveit Íslands sem ber
virðingu fyrir rótunum en eru óhræddir við að horfa
fram á vegin, blýþungt og útpælt í anda Kanadísku
bandanna sem hafa verið framarlega á þessu sviði
síðastliðin ár.

DREP: Fyrrverandi meðlimir úr Ham, Sororicde o.fl. að
spila mulningsmálm sem vekur upp myndir af rússneskum
ísbrjót á ferð sinni um ísi þakið Norður Hafið

DYS: gamalreyndar kempur í þessu frægasta þungapönk-
bandi Íslands. Gáfu út hina umdeildu Ísland Brennur,
komnir hérna saman eftir langt hlé og fólkið hefur
beðið nógu lengi. Pönk í anda Rudimentary Peni, Flux
Of Pink Indians með hardcore áræðini og metal
skírskotunum á köflum…

I ADAPT: Reyndasta, elsta og víðförlasta hardcore band
Íslands, óhræddir við að þróa tónlistina sínar í
ófyrirsjáanlegar áttir. Með nýja breiðskífu í
farteskinu,Chainlike Burden sem nú þegar hefur fengið
góða pressu í netheimum og selst vel. Komnir á mála
hjá Morphius records í Bandaríkjunum og Kanada og
íslensku útgáfunni Mammaþín!. Þungt nýtt efni og nýr
meðlimur.

KIMONO: Klárlega rómaðasta hljómsveitin á Sköllfest
II, á meðal tónlistarspegúlanta landsins og þó víða
væri leitað. Síðasta breiðskífa þeirra, Arctic Death
Ship er að mörgum talin ein af bestu plötum
Íslandssögunnar. Prógressíft, tilraunakennt og djúpt
“indí” rokk (Can, Polvo, Fugazi, Þeyr, Yes…) . Nýr
meðlimur og ný lög sem koma verulga á óvart!

SKÍTUR: Nýstirni úr Garðbænum sem sækja áhrif úr
smiðju Klink, gamla Mínus og Super Joint Ritual. Úr
verður þessi blýþungi, ofbeldisfulli og stórvari
kokteil brútalismanns.

SOUTH - COAST KILLING COMPANY: Eðal rockabilly garage
punk með Danny Pollock hugsjónamanni TÞM/Hellrinn, (ex
Ego, Ex Utangarðsmenn) í farabroddi. Hér er hann á
ferð með sitt lið og framreiða töffararokk sem ekki má
missa af. Captain TÞM á mikinn stuðning skilið fyrir
alla sína vinnu í þágu tónlistar í Reykjavík.

RETRON: Þessu bandi er erfitt að lýsa enda gjörsamlega
einir um hituna þegar kemur að þeirra einstaka
þungarokki enda með eintóma sérvitringa og geðklofa
fjöllistamenn innan sinna raða sem hafa gert garðinn
frægann víða þar sem æðri list og forynjir lifa í sátt
og samlyndi. Hvað myndi gerast ef að lagahöfundar
hinna og þessa Nintendo leikja væri fágaðir og
þrautjálfaðir tónlistarmenn sem hefðu gaman af því að
spila hetjumetal?
>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>


Praktískar upplýsingar:

SKÖLLFEST II
Þriðjudaginn 11. sept og hefst klukkan 18:00
Kostar einungis 1000kr.
EKKERT ALDURSTAKMARK
Hvar: Hellirinn/TÞM, Hólmaslóð 2, 101 Reykjavík

Fyrir svanga þá ber ekki að örvænta því að Pappinos
pizza verður á staðnum með flatbökur á góðu verði
>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>

Frekari upplýsingar á
www.dordingull.com/skollfest
www.myspace.com/gagnaugad




Kær kveðja

GAGNAUGAÐ og vinir…