Jeff Buckley Tribute Þann 13 júní 2007 fóru fram tónleikar í minningu Jeff Buckley, en 29 maí síðastliðin voru liðin heil tíu ár frá dauða þessa merka tónlistarmanns. Reyndar áttu tónleikarnir að vera þann dag en þeim var frestað vegna veikinda. Sá sem stóð fyrir tónleikunum er mikill aðdáandi Jeff Buckley, en það er gítarleikarinn Franz Gunnarsson. Hann hafði fengið til liðs við sig marga af allra færustu tónlistarmönnum landsins og auðvitað var útkoman ekkert annað en tær snilld.

Tónleikarnir stóðust allar mínar væntingar og mun meira en það! Opnunin hefði varla getað verið betri, en upptaka var sýnd frá móður Jeff, Mary Guibert, en hún talaði opinskátt um Franz og þetta verkefni hans og sagði okkur að öskra, syngja með og heilla Jeff Buckley. Þannig byrjaði það og gæsahúðin sem ég fékk af þessu myndbandi entist út alla tónleikana.

Túlkun á Jeff Buckey var í höndum Sverris Bergmanns (Daysleeper) og Kristófer Jensson (Lights on the Highway). Mig grunaði allan tímann að Sverrir myndi ná Buckley helvíti vel sem og hann gerði með stæl. Hann gerði það svo vel að mér leið einsog að Buckley hafi gert sér ferð niður til jarðar og sungið í gegnum Sverri, slík voru gæðin. Kristó kom mér skemmtilega á óvart einnig, fyrir tónleikana hélt ég að hann myndi ekki ráða við háu tónana sem einkenna flest lög Buckley. En eftir allt saman stóðst hann prófið og vel það og skilaði sínu hlutverki afar vel þetta kvöld.

Hljómsveitin var ekki af verri endanum en þeir náðu lögunum ansi vel og strax er byrjunarlagið (Mojo Pin) hófst hélt ég að verið væri að spila upptökuna af Grace disknum vinsæla. Franz fór auðvitað fyrir sínum mönnum á gítar, aðalmaðurinn á bakvið þetta allt saman en samt fór lang minnst fyrir honum greyinu en hann er lágvaxinn og sköllóttur og stóð lengst til vinstri á sviðinu í skugga. Honum til hjálpar við gítarleik var mættur yngri bróðir Kristófers, Bjarni Þór Jensson, sem spilaði þó mest allan tíman á kassagítar. Hann er gríðarlega efnilegur gítarleikari að mínu mati og vert að fylgjast með honum í náinni framtíð. Á bassan var svo ekki minni maður en Birgir Kárason en hann var til að mynda bassaleikarinn í X-Factor þáttunum og einnig hefur hann verið í hljómsveitinni Ízafold. Húðir þandi minn uppáhalds íslenski trommuleikari og að mínu mati einn sá allra skemmtilegasti á landinu en það er hann Jón Geir Jóhannsson en hann er einmitt trommarinn í Ampop og Hrauni. Það er alveg hreint yndislegt að fylgjast með honum á trommunum, spilagleðin, taktarnir og hæfileikarnir sem hann býr yfir eru ólýsanlegir. Önnur slagverk voru í umsjá Þórdísar Claessen og hefði ég haldið hennar væru ekki þörf en síður en svo, slættirnir sem hún hafði fram á að bjóða voru ómissandi og mætti segja að hún hafi verið einskonar þriðja hönd Jóns Geirs. Hljómborðsleikur var svo í hlutverki hins nýja hljómborðsleikara Jeff Who?, Valda Kristjánssonar, einstök frammistaða og hljómborðið var góð fylling í þessa stórgóðu hljómsveit sem spiluðu lög Jeff Buckley af mikilli innlifun.

Gestirnir voru ekki af verri kantinum en því miður forfallaðist Páll Rósikranz ásamt Pétri gítarleikara. En fyrir þá hlupu góðir menn í skarðið. Einn af mínum allra uppáhalds söngvurum á Íslandi, Helgi Valur (ekki gaurinn sem var í Idol), kom í stað Palla og söng lagið Hallelujah sem er án efa frægasta lag Jeff Buckley þó það sé ekki eftir hann (Leonard Cohen á það). Í stað Péturs kom svo Bjarni, gítarleikarinn í Mínus, hann spilaði undir hjá Helga og svo einnig Andreu Gylfa sem söng Satisfied Mind einkar vel en það er eitt af mínum lang uppáhalds lögum. Hann stal kannski svolítið senunni af Bjarna Þór en einsog faðir minn orðaði það var það einstök upplifun að sjá hann spila lagið Hallelujah. Aðrir gestir voru Finni (Dr. Spock) og De La Rósa (Sometime). Er Finni gekk inná sviðið hélt ég um stund að vitlausum manni hefði verið hleypt inn en hann er frekar þéttur, snoðaður, með tattú á hausnum og ansi ör. Hann söng lagið Kick Out the Jams eftir MC5 en Jeff tók það oft á tónleikum sínum. Finni tókst að hrista ansi vel uppí salnum en lagið var afar þétt og kom hann inná sviðið tautandi að nú væri ballið byrjað! De La Rósa kom svo heldur betur á óvart með flutning sínum á Liliac Wine, en hún hefur ansi spes rödd sem var ofur nálægt því að fara í taugarnar á mér en svo var hún ósköp sjarmerandi á endanum.

Kynnir kvöldsins var tónlistarnördið Andrea Jónsdóttir en hún hefur greinilega meiri reynslu (þekkingu) af tónlist en það að vera kynnir. Hún horfði sjaldan fram í salinn enda sá hún aldrei neitt (að eigin sögn). Ruglaðist einu sinni skemmtilega og var titrandi og óörugg. Hún bætti þetta þó upp með miklum fróðleik og góðri kynningu á hljómsveit og lögum. Eitthvað sem mér finnst vanta oft á tónleikum alfarið.

Lagaval Franz var til algerrar fyrirmyndar en á þessum stórgóðu tónleikum fékk ég að heyra öll mín uppáhalds lög með uppáhalds tónlistarmanninum mínum Jeff Buckley. Reyndar vantaði eitt lag en það var lagið Corpus Christi Carol en ég er meðvitaður af því að erfitt sé að reyna að fylgja flutningi Jeff þar á eftir, ef það væri eitthver sem ég gæti trúað fyrir því að covera lagið væri það án efa Diddú. Annars voru öll lögin af Grace tekin, nokkur vel valin af Sketches for my Sweetheart the Drunk og fáein lög út fyrir það.

Það má með sanni segja að allt hafi gjörsamlega smollið? saman á þessum mjög svo skemmtilegu tónleikum. Franz tókst lygilega vel upp með tónleikana, mannskapurinn var til mikillar mikillar (á að vera tvisvar sinnum) fyrirmyndar og það má segja að Jeff hafi verið heiðraður með miklum stæl þetta kvöld.