Eins og flestir vita er myndband við lagið Opium með Noise komið á popptíví og ég verð að segja að þetta er eitt langbesta íslenska lag sem ég hef heyrt! LAgið er svo geðveikt flott, og ég skil ekki af hverju allir eru að segja að þeir séu að stæla nirvana. Þeir eru að mínu mati með mjög góð og frumleg lög. En allavega myndbandið er snilld og lagið ennþá betra. AÐ mínu mati er Noise með langbestu hljómsveitum á landinu og ekki mun líða á löngu þangað til að þessir strákar meika það. ok þetta er það eina sem ég ætlaði að segja!

p.s. Noise rokka feitt!!!!