Ævi Janis Joplin Árið 1943, 19. janúar nánar tiltekið fæddist stúlkubarn sem átti eftir að eiga viðburðaríka ævi. Sagan er flestum kunn, Janis Lyn Joplin hét hún, uppalin í Port Arthur, Texas.

Janis sýndi strax í æsku mikinn áhuga á skáldskap og tónlist. Rétt eins og með margar stórstjörnur framtíðarinnar þótti Janis óvenjuleg strax sem barn og var af mörgum álitin frekar skrítin. Hún samdi ljóð og fór sínar eigin leiðir. Frekar snemma áttaði hún sig á því að hún hafði sérstakt yndi af blús og sálartónlist. Þegar hún komst svo að því að blúsinn átti einnig vel við hennar hráu rödd hóf hún að syngja blús af krafti og taka lög eftir dívur eins og Bessie Smith, Odettu og Leadbelly.
Janis vissi að tónlistin leitaði fast á hana svo hún fór að koma fram opinberlega þegar hún hafði aldur til. Fyrst í stað kom hún fram á kaffihúsum og skemmtistöðum í litlum bæjum í Texas með litlar tekjur. Hún fór svo að ferðast um USA, meðal annars til New York. Janis fór í háskóla en fann sig ekki innan um námsbækur þótt hún ætti ekki erfitt með að læra. Tónlistin kallaði svo sterkt á hana að ekkert annað komst að.
Árið 1966 fékk Janis fyrsta stóra tækifærið. Rétt eftir að hún byrjaði í Háskólanum í Texas var henni boðið í áheyrnarprufu í San Francisco þar sem verið var að leita að söngkonu í hljómsveit. Umboðsmaður hljómsveitarinnar hafði heyrt Janis syngja á kaffihúsum og þess vegna fékk hann hana í prufurnar. Hún fór og fékk starfið. Hún var þá orðin söngkona í hljómsveitinni “Big Brother and the Holding Company”. Hljómsveitin spilaði aðallega rokk, mest í Californiu og hafði starfað í svolítinn tíma. Þeim fannst tími til kominn að fá söngkonu í bandið og passaði Janis vel inn í. Fljótlega vakti ótrúleg og sérstök rödd Janisar athygli.
Sumarið 1967 sumarið sem hippamenningin var í hávegum spilaði Big Brother á stórum tónleikum á hátíð sem nefndist Monterey International Pop. Þeim gekk svo vel á þessari hátíð og flutningur þeirra svo góður að plötuútgefendur fóru að rífast um Janis og hljómsveitina. Janis söng þar lagið Ball and Chain og vakti mikla athygli. Þá má kannski segja að heimurinn hafi lagt við hlustir.
Hljómsveitinni var stjórnað af einum aðalmanninum í bransanum á þessum tíma, Albert Grossman. Eftir mikið stríð útgáfufyrirtækja, gaf hópurinn út plötu hjá Columbia Records, undir stjórn Alberts. Fyrsta platan hét Cheap Thrills kom út í ágúst 1968 og fór fljótlega í gull, með lögin Piece of my heart og Summertime. Bandið spilaði á stórum tónleikum og átti marga aðdáendur sem flestir voru aðdáendur Janisar. Eins og þeir sem þekkja til söngkonunnar, vita að hún átti í mikilli baráttu við fíkniefni allt sitt líf og byrjaði ung að drekka áfengi af miklu óhófi og taka inn örvandi efni. Með aukinni frægð fylgdu svo meiri og sterkari eiturlyf. Eiturlyfin fóru að hafa áhrif á framkomu hljómsveitarinnar á sviði sem og sambönd og hæfileika til þess að vinna saman og um jólin 1968, spiluðu þau sitt síðasta undir nafni Big brother. Hljómsveitin hefur þó komið fram á sviði eftir lát Janisar og meðal annars komið fram í opinskáum viðtölum um eiturlyfjaneysluna sem þau öll voru djúpt sokkin í.
Eftir að Big brother hættu gafst Janis þó ekki upp og byrjaði strax að safna saman í nýja hljómsveit. Sam Andrews úr Big Brother fylgdi henni yfir í annað band The kozmic blues band. Í þetta sinn stefndi hún meira í átt að blústónlist, með rokkívafi. Nýja platan hennar hét I Got Dem 'Ol Kozmic Blues Again, Mama sem var gefin út í September 1969. Í USA voru misjafnar móttökur en í Evrópu var Janis og hljómsveit hennar vinsælli sem aldrei fyrr. Eftir á að hyggja þykir mörgum þessi plata ein sú besta sem komið hefur út með Janis. Drykkja og dóp jukust hjá Janis og notaði hún efnin bæði til að viðhalda sköpunargleðinni og höndla frægðina.
The kozmic blues band lifði ekki lengi, en Janis bjó til þriðja bandið Full Tilt Boogie Band, þar sem fagmenn voru í hverju horni. Hún hætti þá á tímabili í dópinu og vildi einbeita sér að því að gera hlutina fagmannlega. Janis fannst hún hafa fundið sig í tónlistinni og blúsnum, í sérstæðum stíl. Þegar hún tók upp næstu plötu Pearl, fór hún þó að nota heróín aftur og í miklum mæli. Hún var komin hálfa leið í átt að gröfinni og endirinn virtist blasa við. Janis Joplin fannst svo látin 4. október 1970 inn á hótelherbergi í Hollywood. Orsökin voru úrskurðuð of stór skammtur af eiturlyfjum. Lík hennar var brennt og öskunni dreyft meðfram strandlínu Californiu. Pearl var gefin út og var að mörgu leiti einstök plata þar sem hún hafði barist við sársaukann sem lífið var fyrir henni á sama tíma og platan var hljóðrituð. Hún smitaði frá sér sársauka í lögunum og með einstakri rödd byggði brú milli rokk og blústónlist. Lög eins og Me and Bobby McGee og Mercedes Benz urðu geysivinsæl og platan selst vel enn í dag. Janis varð aðeins 27 ára og þó svo hún átti aðeins 4 plötur útgefnar, stimplaði hún sig rækilega inn í tónlistarsöguna.

Janis dó tveimur vikum eftir að Jimi Hendrix dó og fljótlega á eftir lést Jim Morrison. Það má því kannski segja að helsti sjarmi þessa tímabils hafi horfið á stuttum tíma með láti þessara tónlistarmanna. Plötur Janisar hafa selst mikið um allan heim og seljast enn. Hún er ein af vinsælustu tónlistarmönnum hippatímabilsins og goðsögn í söngkvenna frá þessum tíma. Hún lifði skrautlegu lífi en er enn í dag ein merkilegasta blús- og rokksöngkona í heimi. Það er í rauninni eins og hún sé alltaf á lífi.
www.rosin.blogdrive.com