Coldplay spilar á Íslandi! Vælurokkshljómsveitin frábæra Coldplay hefur ákveðið að halda tónleika hér á landi þann 22.ágúst næstkomandi.

Ekki hefur verið staðfest hvar eigi að halda tónleikana, en það þykir nokkuð víst að Laugardalshöllin verði ekki fyrir valinu.

Þetta er auðvitað fengur fyrir alla tónlistarunnendur hér á klakanum sem eru að fá ansi gott sumar upp í hendurnar, Sigur Rós, Propellerheads, Blonde Redhead, Rammstein, HAM og nú Coldplay…
Er hægt að biðja um betra sumar?

Nánari upplýsingar verða væntanlega á heimasíðu Coldplay,

http://www.coldplay.com

- Pixie