Tónleikum Velvet Revolver aflýst.
Okkur þykir leitt að tilkynna að okkur hefur borist tilkynning þess efnis að öllum tónleikum Velvet Revolver í Evrópu frá og með 1.júlí hefur verið aflýst. Tónleikunum sem vera áttu í Egilshöll þann 7. júlí er því aflýst.

Þeim sem eiga miða á hljómleikana bjóðast eftirfarandi kostir:
1) Fá miðann endurgreiddan á þeim sölustað sem hann var keyptur á.
2) Koma með miðann í Egilshöll þriðjudaginn 7. júní eftir kl. 15.00 og skipta honum fyrir miða á Iron Maiden eða á hljómleika Megadeth. Ath. mismunur á miðaverði er endurgreiddur.
3) Skipta miðanum á sölustöðum og fá í staðinn miða á hljómleika Megadeth sem verða í Kaplakrika 27.júní. Mismunur á miðaverði er endurgreiddur.

Kveðja
RR ehf.