Jeff Porcaro Hér ætla ég að segja stuttlega frá einum af mínum uppáhalds trommurum: Jeff Porcaro


Jeff Porcaro fæddist 1. apríl 1954 í Hartford, Connecticut í Bandaríkjunum og fékk áhugann á trommum gegnum föður sinn. Hann byrjaði að spila af alvöru þegar hann var orðinn 7 ára þótt að hann væri viss um að hann byrjaði enn fyrr. Eingöngu faðir hans gæti vitað hvernær hann byrjaði. Formleg trommukennsla kom upprunalega frá föður hans Joe, og seinna meir frá trommurunum Bob Zimmitti og Rich Lapore

Ef Jeff Porcaro hefði aldrei verið með í að stofna hina víðsfrægu hljómsveiti TOTO hefði hæfileikar hans aldrei komið í ljós. Eftir að hann hætti í háskóla til þess að fylgja “Sonny and Cher” í Las Vegas hafði hann þegar spilað með “Seals and Crofts, Boz Scaggs, Steely Dan og mörgum fleirum.

Jeff ýmindaði sér aldrei að verða besti trommuleikari í heimi. Han vildi einfaldlega ekki setja það mikla pressu á sjálfan sig. Og þó að trommurnar mótuðu hvern einast hluta af lífi hans stjórnuðu þær honum aldrei.

Jeff vissi hvar hann stóð sem trommari. Sjálfsagt, hann spilaði í alfrægri hljómsveit en hvað sem hann snertir, gefur það ekki honum þau réttindi á því smjaðri sem honum hefur verið veitt. Hann áttie rfitt með að skilja þá staðreind að hann átti það skilið. Hans sterkasta sannfæring liá hjá tónlistinni og fjölskyldunni.

Alveg frá byrjun ferils hans var hann álitinn einn af topp trommurunum í bransanum. Hann hafði ótrúlega góða tilfinningu á takt og hæfni til þess að takast á við hverja tónlistarstefnu sem er.

Á meðal hundruði geisladiska sem hann spilaði á voru: Thriller (Micheal Jackson), Jump up (Elton John) og Human Touch (Bruce Springsteen).
Og á meðal þúsundi listamanna sem hann spilaðiu með voru: Bonnie Raitt, the Bee Gees, Jackson Browne, Michael McDonald, Lowell George, Hall & Oates, Etta James, Joe Cocker, Nils Lofgren, Manhattan Transfer, Greg Lake, George Benson, Larry Carlton, Paul McCartney, Pink Flyod, Elton John, Michael Jackson, Peter Frampton, Airplay, Peter Allen, America, and Stanley Clarke.

Jeff Porcaro dó úr hjartaáfalli 5 ágúst 1992 aðeins 38 ára. Hann var að nota skordýreitur í bakgarði sínum og það var til að hann fékk ofnæmiskast og leiddi til hjartaáfalls. Við krufningu fannst alvarlegur hjartasjúkdómu sem ekki hafði tekist að greina fyrr. Mánuði seinna var krufningarskýrsla send út af Los Angeles dánardómstjóra að fundist hafði leifar af kókaíni í honum. Fjölmiðlar ýktu dauða hans og sögðu að hann dó úr ofneyslu kókaíns.

Við jarðarför Jeffs Porcaro voru í kringum 1500 manns. ”The Jeff Porcaro Memorial Fund" var stofnað til þess að styrkja tónlistina og listadeild Grant Háskóla í Los Angeles þar sem Jeff var við nám.

Minningar tónleikar voru haldnir 14. desember sama ár og komu fram margir heimsfrægir tónlistarmenn. Á meðal þeirra voru: Boz Scaggs, Donald Fagen, Don Henley, Michael McDonald, Eddie Van Halen, og að sjálfsögðu Toto. Hagnaður tónleikanna var notaður sem skólastyrkur fyrir syni Jeff's.

Jeff skildi eftir sig foreldra sína Joe og Eileen, 2 bræður Mike og Steve, systur Joleen, konuna sía Susan og 3 syni Christopher, Miles og Nico.