Hljómsveitin Funeral Diner var stofnuð árið 1998 í Half Moon Bay í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum en er í dag staðsett í San Francisco. Hljómsveitin spilar stefnu sem oft hefur verið nefnd “screamo” sem er samsuða orðanna “scream” (öskur) og “emotional” (tilfinningaríkt). Þeir myndu líklegast sjálfir lýsa hljómsveitinni sem “öskrandi, kaotískt, melódískt hardcore” en vilja frekar bara láta tónlistina tala.
Þeir hafa gefið út fullt af smáskífum, split plötum (þar sem 2 eða fleiri hljómsveitir deila skífu) og tvær plötur í fullri lengd. Sú fyrri kom út árið 2002 og heitir Difference Of Potential en hún var endurútgefin af Alone Records fyrir skemmstu. Nýjasta afurð þeirra heitir The Underdark en öll lögin á henni voru sérstaklega samin fyrir hana með heildina í huga, gagnstætt því að henda bara saman ólíkum óútgefnum lögum, í von um að útkoman verði heilsteyptara verk. Tónlistarlega séð er hún víðtækari en fyrri verk þeirra með lengri lögum og tilraunum með ný hljóð í bland við þeirra hefðbundnu hrjúfu, öskrandi árás. Textarnir taka á þeim mótsögnum og persónulegu vandamálum sem fylgja því að búa í hnignandi samfélagi.
The Underdark hefur verið að fá vægast sagt góða dóma í óháðu músíkpressunni og sagði einn skríbent að með plötunni hafi Funeral Diner komist eins nálægt fullkomnun á þessari tónlistarstefnu og hægt er. Platan er talin frumleg enda draga Funeral Diner hér áhrif frá forkólfum þessarar kaotísku stefnu eins og Envy eða Drive Like Jehu, post-rock böndum á borð við Godspeed You Black Emperor og Mono og hefur bandinu jafnvel verið líkt við Neurosis og einnig hafa þeir notast við hljómborð til að fá fjölbreyttari hljóm á plötuna.

Tónleikar þeirra hér á landi eru hluti af þriggja og hálfs mánaða tónleikareisu um Bandaríkin, Japan og Evrópu og má búast við miklum látum.



Funeral Diner spila á tvennum tónleikum, þeir fyrri verða

Föstudaginn 13.mai
í T.Þ.M. úti á granda
Húsið opnar kl 19:30
einungis 1000 krónur inn.
Gavin Portland
Denver
Funeral Diner

Og seinni tónleikarnir verða

Laugardaginn 14.mai
Grand Rokk
húsið opnar kl 22:00
einungis 1000 kr inn
Bölvun
Bob
Myra
Funeral Diner


mp3 má finna á www.myspace.com/funeraldiner & síðan er hægt að hala inn nokkrum lögum af nýja disknum http://notendur.centrum.is/~drastl/FuneralDiner/

www.imc-promotions.org