Hæ ég er með miða á hina frábæru Rammstien. Ég fór í Mjóddina og var þar allt í hakki. M&M héldu að það væri ekki svona margir sem myndu koma og voru óviðbúnir (út af því fór allt í hakk). Það voru ekki svo margir sem mættu um 5 en það voru nokkrir með stóla og allan útbúnað (þeir voru auðvitað fyrstir). Ég kom 1 0g hálfum tíma fyrr og þegar klukkan varð 10 þá þurfti ég að bíða í klukkutíma eftir að komast í búðina því það var hleypt inní búðina af hollum (ímyndið ykkur nær tóma búð en risastóra biðröð fyrir utan hana). Um hálf 11 heyrði ég í einhverjum segja að allir miðar væru uppseldir í öllum búðum nema í Mjóddinni. Þegar að dyrunum var komið var ég ekki með fæturna á jörðinni það var svo mikil hrúga en það er ekki málið vinir mínir voru úti þegar mér var hent inn (ekki af mínum völdum) og keypti miða þá sagði gaurinn að það var um það bil 50 miðar eftir þá fór ég út og sagði fólki frá því en þeir sem voru nr. 100 og eftir fóru ekki einu sinni (hálfvitar).
Þetta var samt gaman og vel þess virði. 8()