Líklegast er að Rammstein haldi aðra tónleika á Laugardegi en fundur var við þá yfir síma um 15:00 leytið og þarf að taka smá áhættu ef svo á að vera að aðrir verða.Sjálfur fór ég í M&M um 11:30 og voru margir aðdáendur vonsviknir fyrir utan en ekki fékk ég miða heldur (djöfullinn) en oft sá maður nú krakka koma út með 6-10 miða í höndunum og finnst mér fáránlegt að ekki sé limitað magn á mann og ekki var furða að uppselt var strax. Þannig að þeir sem fengu ekki miða í dag geta haldið í vonina um að komast á Rammstein.