Dead Sea Apple og Hoffman á Gauknum 19.des... Hljómsveitin Dead Sea Apple er komin á kreik á nýjan leik, eftir að hafa endurheimt einn meðlimanna úr tveggja ára námi í Svíþjóð. Í því tilefni ætla þeir félagar að efna til tónleika á Gauki á Stöng sunnudagskvöldið 19.desember kl. 22.00 stundvíslega. Leikin verða lög af óútkominni skífu sem verið hefur í vinnslu sl. 3 ár ásamt efni af fyrri plötum sveitarinnar Crush & Second 1. Sérstakir heiðursgestir verða drengirnir í Hoffman sem ætla að troða upp ásamt DSA.

Ókeypis inn!

Tóndæmi má finna á www.mp3.is og www.rokk.is