John 5 - Vertigo Hér erum við sko að tala um sannkallað meistarastykki fyrir gítarleikara á ferð.
Um er að ræða John Lowery a.k.a. John 5 fyrrum gítarleikara Marilyn Manson til fjölda ára. Áður en hann gekk til liðs við Manson hafði hann verið að spila með Kd Lang, Robin Zander, David Lee Roth (Van Halen) og Rob Halfor (Judas Priest).
Þar sem að John hefur eitt mestum sínum tíma á ferðalögum með Manson í það að sitja aftast í rútunni og læra af kántrý DVD diskum og bókum þau tips'n'tricks sem hann notast við á þessari plötu, ferðafélögum sínum til mikilla ama.
Útgáfa þessarar plötu má því koma mörgum Manson/John 5 áhangendum á óvart þar sem að óvenju mikil bluegrass áhrif er að finna á þessari plötu. En þó miðað við þá sem hafa fylgst vel með kappanum er þetta eitthvað sem vel hefði mátt búast við.

Diskurinn er gott sambland af hugmyndum hans sem að hann hefur fengið að notast við í Marilyn Manson og blugrass tækni sem að hann hefur þjálfað upp. Tónlistin gæti vel átt heima í kvikmyndum þar sem að engin söngur er á plötunni fyrir utan hálf drungalega rödd sem að þekur seinasta lag plötunnar.
Lögin eru frekar heilsteipt og hnitmiðuð sóló sem að hann spilar eins og um söngrödd væri að ræða nema að í hans “sönglínum” er um margfalt fleiri nótur að ræða.
Hann tekur einnig lögin og hefur heildartónin alltaf jafnan í hverju lagi og er ekki að blanda Manson skotnri metal ballöðu saman við brjálæðis bluegrass tóninn sinn þó að hann taki blugrass lögin og spili þau frekar rokkað. Alltaf er hægt að greina vel á milli þessara laga og er mjög svo gaman að hlusta á kántrý lögin hans þar sem að hann er ekki einungis að notast við nýja signature Fenderinn sinn heldur er hann líka að spila á banjo, lap steel og önnur svipuð hljóðfæri.

Í heildina litið er þetta gripur sem hver og einn gítaristi (sem og aðrir) ætti að eiga í safninu hjá sér til þess að grípa í við gott, vel rokkað tilefni. Frábært að sjá loksins hversu góður hann er þar sem að hann hefur aldrei verið full “nýttur” af Marilyn Manson.

Og til gamans má geta að hann sagði í viðtali að þessi plata væri einungis gerð til þess að bæta upp fyrir bælda sólógítarista þörf hans hjá Manson til margra ára.