Tónleikar í Reykjavík, 27. og 28. október


Hin margrómaða þungarokkshljómsveit Into Eternity frá Kanada mun leggja leið sína til landsins í október þar sem hún mun spila á tvennum tónleikum. Þessi stórkostlega hljómsveit er á mála hjá Century Media útgáfufyrirtækinu, sem er eitt það stærsta í bransanum og er á leiðinni í langt tónleikaferðalag í Evrópu í október mánuði. Sveitin mun enda tónleikaferðalag sitt hér á landi, og má því búast við alveg ótrúlega þéttri frammistöðu frá þeim, enda sveitin orðin vel þétt og með keyrsluna í lagi.

Into Eternity er ein af allra áhugaverðustu hljómsveitunum í þungarokkinu í dag og bryddar upp á sambræðing af nokkrum gerðum þungarokks, allt frá melódíum og söng í stíl við Iron Maiden og The Mars Volta, út í samhljómun á borð við Queen, og yfir í argasta dauðarokk. Óaðfinnanleg samblöndun á progressive power metal og tæknilegu dauðarokki, eins ólíkar stíltegundir og þær nú eru. Svo vel gera þeir það að bandaríska tímaritið Metal Maniacs lýsti því yfir nýlega að bandið hafi einfaldlega skapað sína eigin stefnu eitt síns liðs. Það sem gerir sveitina hvað sérstakasta er að allir meðlimir hennar syngja, 4 aðalsöngvarar sem allir syngja með (mismunandi) dauðarokksröddum, ásamt því að tveir þeirra skipta reglulega yfir í hreinar “clean” raddir. Þetta myndar mjög eftirminnilega hljóðmynd harmónía sem ekki margar sveitir leika eftir svo vel sé. Sveitin hefur einnig á að skipa framúrskarandi hljóðfæraleikurum sem sjá til þess að tónlistin kemst vel til skila, þétt og mössuð, enda er hún síður en svo í einhverju aukahlutverki.

Fyrri tónleikarnir verða fyrir alla aldurshópa og verða haldnir í Hellinum, hinu nýja og glæsilega tónleikahúsnæði í Tónlistarþróunarmiðstöðinni úti á Granda. Seinni tónleikarnir verða svo á Grand Rokk, sem er að verða einn af skemmtilegustu tónleikastöðum borgarinnar, en þar myndast oft alveg ótrúleg stemning.

Upphitunarhljómsveitirnar eru ekki af lakari endanum en þar fara fremstir í flokki hinir mögnuðu Klink sem eru að koma saman aftur eftir langt frí. Þessi sveit er ein af dáðustu sveitunum í íslensku harðkjarnasenunni og gáfu út stuttskífuna 666°N árið 2001 sem gerði allt vitlaust. Endurkomu Klink er beðið með mikilli eftirvæntingu, en þess má geta að Þröstur í sveitinni Mínus var meðlimur í þessari sveit áður en hún fór í dvala.

Önnur sveit sem er að fá fólk til að sperra eyrun er norðlenska hljómsveitin Nevolution. Sveitin er nýbúin að gefa út 5 laga stuttskífu, The Jumpstop Theory sem er með því besta sem hefur heyrst frá íslenskri þungarokkshljómsveit lengi. Naut bandið fulltingis Smára ?Tarfs? Jósepssonar gítarleikara við gerð þessarar skífu, sem var tekin upp og framleidd (produced) af bandinu sjálfu.

Tóndæmi (innlend download)
Af Buried in Oblivion:
Spiralling Into Depression -
http://pc.skjalfti.is/dordingull/mp3/06_-_Spiralling_into_Depression.mp3
Embraced By Desolation -
http://pc.skjalfti.is/dordingull/mp3/02_-_Embraced_by_Desolation.mp3
Splintered Visions -
http://notendur.centrum.is/~drastl/IE/Into_Eternity_01_Splintered_Visions.mp3


Frekari upplýsingar á http://www.restingmind.com

Af Dead or Dreaming:
Dead or Dreaming -
http://notendur.centrum.is/~drastl/IE/IntoEternity_DeadorDreaming_deadordreaming.mp3
Resting Mind concerts