Jæja þá eru bara nokkrir mánuðir í nýja diskinn með SOAD, og þeir hafa byrjað með svona “System TV” dæmi á heimasíðunni sinni þar sem þeir sýna hvað þeir hafa verið að bralla undanfarið, fyrsta system TV er svona sneak preview frá uptökum á nýja disknum og er næstum heilt lag af disknum spilað lagið er að finna hérna http://www.systemofadown.com/Videos/prison.ram (ég þori ekki að gera html það virðist alltaf fucka upp greinum þannig gerið bara copy paste). Það er greinilegt að þarna er Daron að syngja með Serj, mér finnst þetta vera ágætis lag bara, þetta er greinilega engin stúdíó útgáfa af laginu, hefur bara verið svona “one take” eða something. Svo má líka svona til gamans geta þess að það hafa verið rumors um það að Slipknot og SOAD muni taka sig saman (kannski með fleiri böndum) og halda tónleikaferðalag, það eru tónleikar sem ég myndi fíla.