Viðkunnulegu piltarnir í I adapt voru að gefa út nýja plötu sem er fáanleg á geisladisk m.a. í 12 tónum en vinyl útgáfan verður fáanleg í október. Í tilefni af þessu meistaraverki ætla þeir að halda TVENNA útgáfutónleika!
Þeir fyrri verða í musteri sviðsdýfinganna NORÐURKJALLARA MH
17. SEPT
HEFJAST 19:00
VÍMUEFNALAUS SKEMMTUN (já, fáviti)

Fífl hirðarinnar eru eftirfarandi:
I ADAPT
INNVORTIS
ZERO TOLERANCE
FIGHTING SHIT
HRYGGJANDI SANNLEIKUR

Seinni tónleikarnir Old Ages róna night out á DE PALACE
18. september

I ADAPT
ZERO TOLERANCE
ISIDOR
JAN MAYEN
ESP


Það verður fjölbreytt og seiðandi.

I ADAPT munu spila af sér rassgatið og allt verður keyrt í botn og búist við vinalegum glundroða og fávitaskap.
NO PASARAN diskurinn er kominn út og tími til kominn að fagna almennilega á heimaslóðum. Hvetjum alla til að mæta og gera sér glaða daga. Æsa þetta pakk upp og snúa öllu á hvolf.
Þess má til gamans geta að Belgíska hardcore bandið ZERO TOLERANCE koma sérstaklega hingað til að taka þátt í þessari vitleysu. Viðkunnalegir og einlægir kappar sem láta ekki sitt eftir liggja.

www.iadapt.tk
www.dordingull.com/tonleika