200.000 Naglbítar ... [sagan] Hljómsveitin stofnuð á Akureyri 1993.
Axel var í hljómsveit í Gagnfræðaskólanum. Villi var alltaf að fylgjast með og tók svo einu sinni sóló við White Room og var ráðinn í sveitina. Þá fóru einhverjir í fýlu og hættu og það var mikið vesen.

Þegar allir voru hættir nema Villi og Axel var ákveðið að fá Kára (bróður Villa) til að spila á bassa. Hann var nýbúinn að kaupa bassa. Æfingar hófust af krafti og lagasmíðar.

1993 tók hljómsveitin þátt í hljómsveitarkeppni á Akureyri og vann. Þá hét sveitin Gleðitríóið Ásar. Sveitin spilaði talsvert undir þessu nafni.

Síðan var nafninu breytt í Askur Yggdrasils og kasetta gefin út sem hét sama nafni. Þessi kasetta var á ensku og textarnir gífurlega pólitískir og rokkið óheflað. Þarna voru piltarnir 14 og 15 ára.

Næst var nafninu breytt í 200.000 naglbítar og þeir tóku þátt í Músíktilraunum 1995. Hljómsveitin hafnaði í 3. sæti og Villi var valinn besti söngvarinn.

Fljótlega eftir það var nafninu breytt í Alias Bob því það er bjánalegt að heita íslensku nafni og syngja á ensku. Sveitin spilaði talsvert undir þessu nafni.

Strákarnir tóku upp 10 lög hjá Kristjáni Edilstein í Stúdíó hljóðlist og um leið og þau voru tilbúin þá hættu þeir að syngja á ensku og breyttu nafninu í 200.000 naglbíta. Þessar upptökur eru nú týndar eins og lög gera ráð fyrir.

1997 komu þeir út á Spírum með lagið Hæð í hús og Helsærður dordingull.
1998, á Kvistum með lagið Hvítt.
1998 koma svo Neóndýrin út.
Platan Neóndýrin fékk frábæra dóma og 6 tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna. Neóndýrin var tekin upp og hljóðblönduð í Grjótnámunni og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson sá um hljóðblöndun og upptökur ásamt fleirum (sjá disk…)

2000 kom út platan Vögguvísur fyrir skuggaprins.
Tekin upp hjá Haffa í Stúdíó september og í Grjótnámunni.
Upptökumenn voru Haffi, Ívar bongó og Þorvaldur Bjarni sem sá um alla lokavinnslu og fleira.
Trommurnar tók Axel upp sjálfur í æfingarhúsnæði á Akureyri og kom með á geisladiski til borgarinnar. Síðan var allt tekið upp á tölvur og lengi vel var hvorki gítarmagnari né bassamagnari notaðir. Allt gert í tölvu. Það eru 4 lög á plötunni sem skarta gítarmagnara en ekkert laganna skartar bassamagnara. Mikil tölvuvinnsla og fullt af hljóðum sem gefa henni sérstakan blæ.
Villi semur alla texta og þessir eru þungir. Eins og Neóndýrin. Ljóð fyrir börn. Ljóð um skuggalandið. Þetta eru vögguvísur fyrir skuggaprins. Fólk verður að lesa textana sjálft og ráða úr þeim það sem það vill. Það býr þó sannleikur á bak við þá alla þó þeir séu e.t.v. ekki allir raunverulegir.
Textarnir eru allir sögur sem tengjast á einn eða annan hátt og mikið lagt í að þeir séu sem bestir og skipti máli.

Hljómsveitin spilaði á Reykjavík Music Festival og svo á Airwaves tónleikahátíðinni í Reykjavík.

Haustið 2001 fjölgaði í 200.000 naglbítum. Þá gekk til liðs við hljómsveitina Róbert Reynisson gítarleikari. Það er óhætt að segja að Róbert hafi sett sinn svip á hljómsveitina og hafi komið með nýja vídd í heiminn sem var fyrir. Það verður gaman að sjá hvað gerist á næstu plötu.

[tekið af www.naglbitar.is]