Vanþakklæti íslenskrar æsku Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að hljómsveitin Metallica er væntanleg til Íslands til tónleikahalds í Egilshöll þann 4. júlí nk. Frábært framtak þar á ferð hjá fyrirtæki er heitir RR ehf, en þeir sjá einnig um Tónleika Placebo í Laugardalshöll 3 dögum síðar. Til að verðlauna sína viðskiptavini, sem búnir voru að kaupa sér miða á Placebo (og hugsanlega líka til að blása lífi í staðnaða sölu á Placebo miðum) ákveður þetta fyrirtæki að bjóða Placebo miðahöfum að kaupa miða á Metallica í forsölu. Að því er virtist sjálfsagt sölutrikk. En þá varð fjandinn laus. Fólk er hundfúlt, og hefur jafnvel heyrst að einhverjir ætli sér á hvoruga tónleika útaf þessu, þósvo þá langi. Ég verð að segja að ég skil þá hugsjón ekki alveg, hversvegna að refsa RR fyrir að reyna að glæða viðskiptin með því að verðlauna sína dyggustu viðskiptavini (í þessu tilfelli þá sem ætla bæði á Placebo og Metallica)?

Af hverju þá ekki að sniðganga ESSO því þeir bjóða sínum dyggustu viðskiptavinum, Safnkortshöfunum, ýmiss fríðindi sem “almenningur” fær ekki? Eigum við þá ekki að segja upp áskrift að Stöð 2 vegna þess að M-12 áskrifendur (þeir sem eru áskrifendur allt árið um kring) fá tilboð á ýmsum hlutum sem við hin fáum ekki? Eru Hagkaup, 10-11, Útilíf, Debenhams o.fl. þá ekki djöfullinn því þau bjóða E-Korthöfum árlega endurgreiðslu, en ekki VISA-korthöfum? Mér leikur forvitni á að vita hvað það er við þetta tilboð RR ehf. sem er svona rangt? Ekki er það skert framboð á miðum, því Placebo miðar verða ekki fleiri en 5300, meðan miðar á Metallica eru 3falt fleiri. Vill einhver vinsamlegast útskýra fyrir mér hvað RR er að gera sem er svona siðlaust, ég, með margra ára reynslu af verslunarstörfum get ómögulega séð það.

Metallica er án efa ein frægasta, ef ekki bara frægasta hljómsveit sem hefur spilað, og mun spila fyrir Íslendinga í nánust framtíð. Þessir tónleikar verða líklega þeir fjölmennustu sem við höfum séð í áraraðir. Við eigum að vera þakklát RR ehf. fyrir þetta framtak, ekki að fara í fýlu út í þau fyrir að beita því sem mér sýnist vera ósköp venjuleg leið til að glæða sölu og verðlauna trausta viðskiptavini, hlutur sem kemur báðum aðilum til góðs á endanum.

Ég vil einnig fyrirfram biðjast afsökunar á hugsanlegum alhæfingum í greininni, því væntanlega eru mun fleiri ánægðir með RR ehf en óánægðir, þrátt fyrir háværar raddir þeirra síðarnefndu.