Barbarossa - Manifesto
Barbarossa stendur fyrir menningar baráttu – Kulturkampf – rétt sem Kamikaze flugmenn fórnum við okkur til að sökkva beytiskipinu Boring.

Það er ekkert áhugavert að gerast lengur, ekkert 4Real. Aðeins þokukenndir hassdraumar glataðrar kynslóðar. Hvítt rusl sem lifir lífi sem er sóun og deyr tilgangslausum dauða…

Við erum orðin að eintómu hjómi sem lifir í gagnslausu tómi og fóðruð erum á plasti og skít…Ekkert er lengur raunverulegt eða með merkingu aðeins froða og hippaspeki frá Hollywood…

Berjum krepptum hnefum í borðin, verðum ekki mottur lengur, deyjum frekar standandi en að lifa á hnjánum. Hin viðurkenndu norm og gildi hafa enga merkingu lengur heldur eru viðurstyggð…

Við erum Rock ‘n’ Rollerar og líf okkar er einstefna blindgata til frægðar og glötunar.
Við leggjum okkur sjálfir línurnar. Viljum meira en…ekkert…því af engu eigum við meira en nóg…


Trausti - Söngur
Össi - Gítar
Hjörtur - Bassi/söngur
Eddi- Trommu