Kurt Cobain (lítið æviágrip) Plz, ekki koma með diss og einhver asnaleg comment, þau lýsa bara persónu þess aðila betur en margt annað.

Söngvarinn Kurt Cobain

Kurt Cobain var einn áhrifamesti tónlistarmaður sem nokkurn tímann hefur verið uppi. Hann ásamt sveit sinni, Nirvana, átti sinn þátt í að breyta tónlistarsviði heimsins, sem þá var staðlað í þungarokksímynd níunda áratugarins, sem sveitir á borð við Metallica, Black Sabbath og Kiss lögðu grunninn að.

Kurt Donald Cobain fæddist í borginni Hoquaim í Washington fylki Bandaríkjanna þann 20. febrúar 1967. Algengur misskilningur er að hann hafi fæðst í nágrannaborg Hoqaim Aberdeen. Hann var sonur hjónanna Donald Cobain og Wendy Fradenburg. Faðir hans vann fyrir heimilinu sem rafvirki hjá útvarpsstöð í Aberdeen. Stuttu eftir fæðingu sonarins fluttust hjúin þangað yfir til að vera nær vinnustaðnum. Aberdeen hélt sér uppi á skógarhöggsiðnaði og unnu flestir við hann. Íbúarnir voru flestir ofur-þjóðernissinnaðir og litu niður á negra og aðra innflytjendur og á sama hátt var hippum úr nágrannaborgum ekki tekið vel innan Aberdeen.

Framan af var ævi Kurt einföld og góð. Hann lýsti sér sjálfur sem mjög glöðu barni. Cobain fjölskyldan var mjög söngelsk og átti Kurt margt frændfólk sem reynt hafði fyrir sér á tónlistarsviðinu. Það leið því ekki að löngu áður en drengurinn sjálfur fékk brennandi áhuga á tónlist. Foreldrar hans gáfu syni sínum trommu á ól þegar hann var þriggja ára og á hana glamraði stráksi allan liðlangan daginn. Það var ekki fyrr en nokkrum árum seinna þó að hann kynntist gítarnum.

Árið 1974 eignaðist Kurt litla systur. Skömmu eftir fæðinguna fór að bera á erfiðleikum innan heimilisins. Donald og Wendy rifust stanslaust og skilnaður lá í loftinu. Árið eftir skildu foreldrar Kurt að fullu og faðir hans flutti út og settist að í litlum bæ skammt frá borginni. Skilnaðurinn hafði veruleg áhrif á hinn átta ára Kurt. Hin fullkomna veröld hans hrundi á nokkrum mánuðum og eins og skilnaðurinn væri ekki nóg þá fluttist nýr kærasti móður Kurt inn nokkrum vikum seinna. Kurt fór að lenda í vandræðum innan skólans og nýi maðurinn, sem var atvinnulaus og drykkfelldur, barði bæði strákinn og móður hans.

Skömmu síðar flutti Kurt í hjólhýsi til föður síns og bjó með honum um tíma. Eina sem hann fann sér til skemmtunar þar var að berja á ?fátæku? börnunum sem móðir hans hafði eytt svo miklum tíma í að fá hann til að forðast. Það leið ekki á löngu þar til að eldri krakkar fóru að nálgast hann og fengu hann til að hanga með sér. Með þeim reykti hinn tíu ára gamli Kurt maríjúana í fyrsta skipti. Var það aðeins byrjunin á hinni miklu fíkniefnaneyslu sem átti eftir að há honum það sem eftir var.

Faðir Kurts ákvað að verða við bænum sonar síns og bað bróður sinn Doug um að útvega honum gítar fyrir 14 ára afmæli hans. Doug tókst að finna notaðan Lindell sem hann fékk Kurt. Pilturinn eyddi núna mestum tíma sínum uppi í herbergi glamrandi á gítarinn og var helsta markmið hans að geta spilað Zeppelin lagið ?Stairway to heaven? eins vel og goðsögnin Jimmy Page. Kurt leit á hinn nýfengna grip sem takmark, loksins einhver tilgangur í lífi hans. Hann var, að sögn Doug, ekki beint tæknilegur gítarleikari, en hafði gott tóneyra og skildi að þagnir skiptu jafn miklu máli í lagi og tónarnir. Það sem Doug hins vegar sá mest í drengnum var hin óslípaða og hráa rödd hans en hún varð hálfgert einkenni hans þegar árin tóku að líða.

Með þessi ummæli á bak við eyrað tók Kurt að leitast eftir því að stofna sína eigin hljómsveit. Hann vildi stofna punk-sveit í anda nýrrar bylgju sem var farin að breiðast út á Bretlandseyjum. Á þessum tíma vingaðist hann við króatískan innflytjenda að nafni Krist Novoselic í gegnum sameiginlegan vin. Krist spilaði á bassa og byrjuðu þeir að æfa sig á lofti snyrtistofu sem var í eigu móður Krist. Þeir buðu trommara að nafni Bob McFadden að æfa með sér af þeirri einu ástæðu að hann átti sitt eigið trommusett.

Nú liðu nokkur ár þar sem Kurt og Krist héldu áfram að æfa lög saman og skiptu út trommurum eins og nærbuxum. Einnig áttu þeir erfitt með að sætta sig á nafn en þau breyttust frá mánuði til mánaðar uns nafnið ?Skid Row? hélst við þá undir lok níunda áratugarins. Þeir tóku upp ,,demo? kasettu eins og flestar aðrar hljómsveitir á þessum tíma, með trommaranum Chad Channing. Helsta vandamálið var að borga fyrir hana en Kurt eyddi mestum sínum peningum í fíkniefni og Kurt sínum í áfengi. Á endanum náðust samningar við útgáfuna Sub Pop um að gefa út smáskífu með þeim. Hún var tekin upp með laginu ?Love Buzz?. Það leið þó langur tími að hún var gefin út vegna lakrar fjárhagsstöðu útgáfunnar en á endanum kom hún út og fór í spilun á hinum ýmsu háskólaútvarpsstöðvum.

Næsta mál á dagskrá var tónleikaferð um Bretlandseyjar en það var oft gott ráð til að ná einhverjum vinsældum síðar í Bandaríkjunum. Áður en haldið var af stað sættust Kurt og Krist þó á að breyta nafninu enn og aftur og var nýja nafnið það sem átti eftir að festast við þá í framtíðinni ?Nirvana?. Árið eftir, 1989, gaf sveitin út sína fyrstu breiðskífu, en hún bara nafnið ?Bleach? eða bleykiefni. Dreifing á plötunni gekk ekki vel en þó nógu vel að gagnrýnendur komust í hana og tóku eftir þessum nýja hljóm sem einkenndi Nirvana og var kenndur við Seattle-borg í Washington.



Árið 1990 var Channing rekinn úr hljómsveitinni og fenginn nýr og betri trommari, David Grohl sem átti eftir að vera með þeim til enda. Fleira gerðist það ár en Kurt kynntist þá stúlku að nafni Courtney Love sem hann átti eftir að giftast ári seinna. Með útgáfu annarrar plötunnar ?Nevermind? var leiðin til heimsfrægðar auðveld. Platan hefur stimplað sig sem ein besta rokkplata sem gefin hefur verið út og seldist í meira en 17 milljónum eintaka í Bandaríkjunum einum. Grípandi lög, heildstæð mynd og tilfinningin á bak við textana og flutninginn var svo skýr að ljóst var að langt yrði í að platan yrði toppuð.

Nirvana gaf út tvær breiðskífur til viðbótar, ?Incesticide? var samansafn ýmissa B-hliða og sjaldgæfra laga og ?In Utero? kom síðan út árinu á eftir. Einnig má gjarnan nefna órafmagnaða tónleika á vegum Mtv-tónlistarstöðvarinnar sem margfrægir eru. Ótímabær dauði Kurt Cobain varð síðan til að sveitin hætti störfum en söngvarinn dó 5. apríl 1994, þá aðeins 27 ára gamall. Dularfullur dauði hans er efni í heila ritgerð í viðbót og fer ég ekki út í hann af þeim sökum. Þess má geta að aðrar rokkstjörnur á borð við Janis Joplin, Brian Jones og Freddy Mercury dóu líka allar 27 ára gamlar.

Kurt Cobain var að mínu mati gríðarlega eftirtektarverður söngvari og skipaði hann sér á sess með þeim bestu. Eina sem hann skildi eftir sig var tónlistin hans og með henni skal hans minnast því nokkuð ljóst er að enginn líkur honum kemur fram í bráð.


Heimildir

Kensington, Halperin og Wallace, Who Killed Kurt Cobain?, 2003
Bloomsbury, Michael Azzerad, Come As You Are, 1993
Mead, Kurt Cobain, Kurt Cobain Journals, 2003