Halló rokkhausar !!!

smá tilkynning:

Hauskúpurokkarinn Stafrænn Hákon er nú búinn að framleiða nýja afurð er nefnist “Stafrænn Hákon - ..Prjónar húmmus”. Afurð þessi mun fást í 12 tónum nú í vikunni og kostar 1000 kr. Efnið á þessari afurð mun eigi vera nýtt, heldur lög sem urðu útundan á fyrri afurðum Hákonsins.
Eldri afurðir munu einnig koma í þessari sömu sendingu til 12 Tóna! Um er að ræða:

Stafrænn Hákon - Eignast jeppa (endurútgáfa af Secret Eye í US)
Stafrænn Hákon - Í ástandi rjúpunnar (upprunaleg útgáfa á Vogor Records)
Stafrænn Hákon - Skvettir edik á ref (endurútgáfa á Resonant Records í UK)
og svo að lokum
Stafrænn Hákon - Prjónar húmmus (heimatilbúin afurð)

endilega að kíkja við og eignast afurðir Hákonsins.

Kveðja,
Stafrænn Hákon
ertu með kjöt á skálminni !