úr nýjasta fréttabréfinu freá Gagnauganu

Elsku þið!!

 

Hér eru undur og stórmerki að gerast. Einhverjir chumps tóku yfir innflutninginn á NOFX og meisturum SICK OF IT ALL (sem eru að koma hingað í annað sinn) og þessir aðilar kappkosta við að gera sem minnst fyrir þessa tónleika til að minnka fyrirhöfn sína.

T.d. eru NOFX tónleikarnir með aldurstakmarki! Þarna læsa þessir aðilar úti mjög stórann hóp tónleikagesta. Their loss. Fífl!

SICK OF IT ALL, eiga að verða á Gauk á Stöng. Þar er þó um að ræða tónleika með ekkert aldurstakmark. Klappklapp. En staðsetningin er hræðileg. Eins og þeir vita sem sáu SOIA síðast, þá er ekki um venjulega rokkhljómsveit að ræða hér. Þeir eru út um allt, hlaupandi, stökkvandi og bara já? Ég er sjálfur í hljómsveit og get vottað fyrir að sviðið á Gauknum (mjög illa hannað og lítið) þvælist fyrir mér, fellir mig og heldur aftur af mér og hljómsveitarfélögum mínum. Hvað þá SOIA! Ofan á það bætist alveg snarklikkaðir áhorfendur. Þeir verða út um allt. Og því er þetta svið óhæft, því eins og skot mun það lkíka þvælast fyrir gestum og þar með er samspil milli hljómsveitar og aðdáenda spillt. Til að bæta gráu ofan á svart, þá er við því búandi að gæsla verði á svæðinu sem hefur aldrei séð neitt þessu líkt og bregðist því of hart við og missi tökin og þá myndast spenna á milli tónleikagesta og gæslu sem getur leitt til leiðinda og jafnvel sárinda!

Við erum að borga 2500kr. Fyrir þetta, þannig að það er okkar ábyrgð að láta í okkur heyra og krefjast þess að NOFX verði all ages og SOIA verði á betri og tónleikavænari stað fyrir alvöru HARDCORE show!!

 

Við getum gert margt með því að skrifa undir þennan undiskriftarlista! Ég hef það frá áræðanlegum heimildum að áhrifamenn og skipuleggjendur munu líta á þennan lista alvarlegum augum, því að svona tónleikar standa og falla með okkur tónleikagestunum. Þannig að þetta er í okkar höndum!!

 

Fáum vini og vandamenn til að skrifa sig undir líka og dreyfum þessu á netinu (email, heimasíður, spjallrásir etc.)

 

SJÁUMST Á STUÐ-VÆNUM TÓNLEIKUM!!!

 

Fokk the fly guy mentality!!

 

Birkir og Gagnaugað

 

 

Undirskriftarlisti:
http://memb ers.lycos.co.uk/unimovies/soia/