Jæja það hlaut að koma að því á endanum. Platan okkar “Misery, Index, Image” er komin út og fögnum við því mjög.
Gripurinn mun kosta 1000 krónur og munum við selja hann á tónleikum hjá okkur á næstunni. Einnig mun vera hægt að nálgast plötuna í Geisladiskabúð Valda (Vitastíg), nú eða bara hafa samband í síma 865 8505 og spyrja eftir Hauki.

Munið svo eftir tónleikunum í kvöld á Gauknum. FRÍTT INN og ekki nema 16 ára aldurstakmark. Við spilum milli 22 og 23. Verðum með eintök af plötunni þar þannig að ef þið hafið áhuga þá talið bara við einhvern af okkur.

Valli Dordingull ætlar svo að spila eitthvað af plötunni í útvarpsþættinum Dordingull.com á X-inu (97.7) í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 22:00