Jæja gott fólk. Ég vill nú bara segja fólki það að það er verið að loka rokk.is vegna peningaleysis hjá rekendum.
Svona hljóðaði tilkynningin um lokunina á spjallborði rokk.is:

Vegna þess að ekki hefur tekist að fá aðila til að auglýsa á síðunni og vegna þess að hýsingarkostnaður er svo hár neyðumst við til að loka síðunni á morgun.
Ef einhver veit um mjög ódýra hýsingu eða þekkir einhverja í markaðsdeildum fyrirtækja sem hugsanlega vilja auglýsa á svona vef þá má viðkomandi senda póst á hakon@rokk.is eða aggi@rokk.is. ef það virkar ekki þá senda á hhs@hi.is

Endilega ef þið vitið um einhverja auglýsendur eða ódýra hýsingu, plís látið þá vita. Því að þetta er ein mesta snilldar heimasíða bara ever, svo hugi ;)