Góðar fréttir af fyrrum Guns N' Roses meðlimum. Axl Rose might own the legal right to use the Guns N' Roses name, but with four ex-Gunners regrouping, the question arises: Will the real Guns N' Roses please stand up?

Loksins það sem allir eru búnir að bíða eftir, ég ætlaði ekki að trúa þessu þegar ég las þetta en Slash, Duff McKagan, Izzy Stradlin og Matt Sorum hafa tekið saman aftur, þeir eru víst búnir að skrifa helling af lögum og það eina sem vantar núna er söngvari og nafn á nýju hljómsveitina. Þetta er í fyrsta skipti sem þeir koma allir saman aftur síðan þeir gerðu Use Your Illusion plöturnar ‘91 og að sögn Slash þá small þetta bara saman hjá þeim.

Mér persónulega finnst þetta vera frábærar fréttir og ég bíð bara með eftirvæntingu eftir að heyra eitthvað frá þeim, þetta kemur líka á skemtilegum tíma þar sem Axl Rose og félagar í núverandi GnR eru að gefa út disk (Chinese Democracy) sem á að koma í búðir í júní, þannig að það gæti jafnvel orðið svolítil samkeppni þeirra á milli.