Jæja, þá er fjórði þáttur búinn! …og Samburu eru að skíta á sig! Boran er yfirburðaættbálkur. Þau eiga líka 400 lítra af vatni.

Samburu vann verðlaunakeppnina og fengu mat í verðlaun, en Boran unnu immunity idolið, þannig að samburu fóru á þing og kusu leiðindatíkina hana Lindu burt, gott á hana! Hún var að segja að henni fyndist það hallærislegt að Silas kraup á meðan hann var að tala við træbið. hvað með “móðir afríku” og “andlega” kjaftæðið hennar? ég þoldi hana ekki og er sáttur við að fá hana í burtu!

Núna er gamla fólkið í Samburu komið í enn verri mál. þau eru aðeins 2 eftir á móti 4 “gen. X” fólki.

ég spái að þetta fari 6-4 fyrir Boran í sameiningunni. Sumburu eru dauð!