sá þetta á mbl.is

Sýnt frá heimsókn Silvíu Nætur til Magna á sérstakri Magnavöku í kvöld
Sérstök Magnavaka hefst í kvöld á Skjá einum klukkan 23:30 en þar munu fjöldi góðra gesta mæta í myndver Skjás eins og styðja Magna Ásgeirsson sem hefur unnið hug og hjörtu landsmanna í raunveruleikaþættinum Rockstar: Supernova. Magnavakan verður send út í beinni útsendingu og þar verður m.a. sýnt innslag með Silvíu Nótt sem heimsótti Magna og hina keppendurna í Los Angeles á dögunum.

Að sögn Sjafnar Ólafsdóttur, kynningarstjóra Skjás eins, spjallar Silvía við Magna og aðra keppendur. „Hún hitti Lukas og furðaði sig á því hvað hann hafi náð langt miðað við hvað hann er „retarded“ (þroskaheftur),“ segir Sjöfn.

„Þetta er kosningavakan okkar,“ segir hún og bætir við að gríðarleg stemning hafi myndast í kringum þáttinn í kvöld. Felix Bergsson og Guðrún Gunnarsdóttir verða kynnar Magnavökunnar, en auk þeirra mun fjöldi góðra gesta leggja leið sína í myndverið í kvöld.

Sjálfur þátturinn verður sýndur klukkan eitt og að honum loknum verður hægt að kjósa í gegnum netið eða með því að senda SMS skilaboð. Hægt verður að kjósa í fimm klukkustundir.

Djöfullinn myndi ég til að sjá þetta :D þetta verður snilld