Já, ég vona að Magna gangi vel. Hann er góður söngvari og virkar vel en guðminngóður þetta er komið of langt!
Móðir mín sagði mér að það hafi verið einhverjir menntaskólar að gefa frí í fyrsta tíma svo nemendur gætu VAKAÐ LENGUR til að KJÓSA! halló! Það er nú eitthvað að.
Það væri frábært ef honum gengi vel, Magna ‘okkar’, en þetta er komið út í rugl og öfgar.
Það að sms gjaldið hafi verið lækkað og þetta sé auglýst allstaðar “kjósamagnakjósamagna annars verðiði étin af skrímslum” er bara OF MIKIÐ.

Ég veit það flestir islendingar halda með Magna en það er ekki rétt að kjósa hann bara af því hann er íslendingur!

Íslendingar kunna ekki að tapa. Stundum skammast maður sín fyrir að vera héðan.

Varð að koma þessu frá mér ;)
-Tinna