Hvað heitir aftur raunveruleikaþátturinn sem var í sýningu á Skjáeinum fyrir þónokkru síðan sem gekk út á það að hópur fólks kom sér fyrir í smábæ í Bandaríkjunum og átti að rannsaka morð en gat um leið lent í klóm morðingjans sjálft.

Ég man að þetta var allt mjög vel sviðsett og maður sat yfir þessu maulandi popp á mánudagskvöldið viku eftir viku.

Vonandi vitiði hvað ég er að tala um og getið svarað mér sem fyrst því ég þoli ekki þegar ég man ekki svona.


:D